*Elínborg*
Bílprófið! =)
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1619 dögum
Klukkan
05.06.2007 00:54:48 / eg_hata_tetta

well....

 

Jæja krakkar...núna eru 79 dagar í bílprófið mitt ;) og soldið (mikið) fleiri dagar í prófið hans Adda..! haha! :haha: 

Veit nú ekki hvað ég get sagt ykkur, í dag svaf ég alveg til hálf tólf :^)  eða þangað til pabbi hringdi og vakti mig:!:  en þá bara klæddi ég mig og hljóp niður í búð í steikjandi hita. Svo fekk ég mér hádegismat og fór svo í sund með Erlu ;) kl 16 hundruð fór ég svo að vinna og núna klukkan 23 hundruð og 30 kíkti ég smá rúnt með pabba ;) En núna ligg ég bara upp í rúmi að reyna að svæfa Adda :$

Draumurinn minn : hehe þetta var nú soldið fyndinn draumur sem mig dreymdi í nótt. sko hann var þannig. Ég var eitthvað að vinna í sjoppunni og svo allt í einu var Salóme bara komin heim fró Þýskalandi! hehe af því að hún nennti ekki að vera þar lengur (líklegt!) en ég var ekkert smá glöð að fá hana og knústi hana alveg í tætlur. En svo aðeins seinna var eitthvað sona um að vera þannig að ég og Andri frændi ætluðum að panta okkur pizzu eeen þá vildi Andri ekkert með því sama og ég! Hann vildi sko fá með skinku og hakki eða eitthvað álíka en ég ætlaði að fá mér með skinku, ananas og bönunum og hann vildi ekkert fá það þannig að við þurftum bara að fá hálfa og hálfa. Eeeeen svo vildi Andri auðvitað setjast allt annarsstaðar en ég...ég vildi sko setjast hjá Salóme af því að hún var nýkomin heim (þetta var sko einhver sona samkoma) eeen auðvitað þurfti ég að láta undan og setjast ekki hjá Salóme...:frown:  en nú man ég ekki meir...hehe góð (kveikjara)saga..! :P

bææææj! :)

- Elínborg - 


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.05.2007 17:31:30 / eg_hata_tetta

--------------------------------------------------

Úpsí...! ég er ekkert búin að blogga í 5 daga...! 8| en hvað með það....það eru örugglega bara sona 7 manneskjur eða eitthvað sem kvitta fyrir sig.. hehe :P En síðan ég lenti í þessari lífsreynslu með geitunginn er ég bara búin að vera í áfallahjálp, fara í göngutúra, vinna, sofa og borða..;) fór reyndar í eina fermingarveislu á sunnudaginn til hans Marteins frænda míns, rosa fínt ;) Allavega.. í vinnunni í gær (í olís) þurfti ég örugglega að gera sona 15 shake-a og bragðarefi eða eitthvað..! :evil: (góð saga).

Veit nú ekki hvað ég get sagt ykkur...þannig að ég ætla bara að reyna að búa mér til sona myndasíðu svo að eg geti farið að setja inn myndir 8) þannig að bæj! :)

 

P.s  Hey vó, ég gleymdi næstum að segja ykkur frá leyndóinum! 8|  allavega...það er nú ekkert merkilegt.. ég var nú bara að kaupa armband fyrir adda og lét skrifa nafnið hans á það og mitt sona inní ;) en jæja..bæj! :)

- Grobníle -


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 16:45:30 / eg_hata_tetta

okei....OOOOOJ!

 

VÁ! ég verð að segja ykkur. í gær þá hengdi ég þvott út á snúru...og svo seinni partinn tók ég hann inn, fór með balann inn í herbergi og var bara í gúddí fíling að brjóta hann saman. Svo var ég bara sona að taka buxurnar mínar upp úr balanaum og hvað haldiði að hafi verið undir þeim...?!?!?!? Þið eigið sko aldrei eftir að gera giskað á það...það var GEITUNGUR :!:  og ég er ekki frá því að þetta hafi verið drottning, ég segi ykkur ástæðuna fyrir því á eftir. En allavega, mér brá ekkert smá og ég er ekki frá því að ég hafi sona frosið í smá stund áður en ég forðaði mér útúr herberginu. Ég vissi ekkert hvað ég átti að gera...ætlaði ekki að þora aftur inn í herbergið en (wo)man's got to do what a (wo)man's got to do (eða hvernig sem maður nú segir þetta.) þannig að ég fór upp og náði í glas og blað til að fanga þetta óargadýr. Þegar ég kom aftur niður var helvítis geitungurinn að labba svona á brúninni á balanum þannig að ég gat ekkert fangað hann í glasið og þar með neyddist ég til að bíða þangað til hann myndi drulla sér á jafsléttu. Og viti menn, loksins gerðist það, reyndar eftir langan göngurtúr á peysunni minni og buxunum. En á endanum hafðist þetta, mér tókst að veiða hann í glasið og loka fyrir með blaðinu. Loksins gat ég klárað að brjóta saman :haha:

Svo kom Addi heim úr vinnunni kl 6 og við fórum með hann upp á eldhúsborð, svo eftir smá tíma var eins og það væri egg eða eitthvað á botninum (semsagt blaðinu) og "rassinn" á geitungnum var alltaf sona eins og það væri eitthvað í gangi þarna..æji sona að dragast inn og út og eitthvað.  Þess vegna held ég að þetta hafi verið dottning. Eeeen kannski var hann bara að kúka hver veit...hehe :D  Jæja..hvað með það...svo fór ég bara í bað, fekk mér að borða og horfði á sjónvarpið.

Í dag er ég nú ekki búin að gera mikið. Labbaði bara næstum því stóra hringinn í morgun (stoppaði sko hjá mömmu), fór að keyra smá með mömmu, fekk mér hádegismat og horfði á ágranna og eitthvað fleira. Núna var ég bara að koma úr smá bæjar-rölti, fór í búðina og var smá að brasa í einu leyndói ;)  má sko ekki segja fyrr en það er ekki lengur leyndó 8) lofa að segja ykkur þetta þá :P

Hef ekki meira að segja í bili... en ein spurning...Hvernig getur maður sett myndir inná síðuna..? :frown: 

 

- Elínborg - 


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 13:40:00 / eg_hata_tetta

- ? -

Halló :P eins og alltaf veit ég ekkert hvað ég get sagt ykkur.. eeen ég get nú sagt ykkur að ég prófaði að keyra "nýja" bílinn í gær í fyrsta skipti. Ég (og pabbi) var semsagt að kaupa mér bíl, toyota corolla, árg. 2000 ;) sona wanna be cool bíll :$ rosa góður.

En í dag (miðvikudag) vaknaði ég klukkan 6:30 takk fyrir..! þannig er mál með vexti að addi fer í vinnu kl. 7 (vaknar semsagt kl. 6:30) og ég vaknaði við vekjaraklukkuna hans og gat ekki sofnað aftur.. 8| þannig að ég fór fram úr, setti í þvottavél og fekk mér að borða..;) svo kl. 7:45 fór ég út og labbaði stóra hringinn, ekkert smá dúleg..:haha: jæja þegar ég kom heim hengdi ég upp úr vélinni, tók smá til og fór svo í búðina að kaupa í matinn :D úff...ég er að kafna úr duglegheitum 8)

Veit nú ekki hvað ég get skrefað meira..þannig að ég segi þetta bara gott..:(

 

- ElÍnBoRg -


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 17:46:36 / eg_hata_tetta

Leiðist..! :)

 

hææj :lol:  well...veit nú ekki afhverju ég er að blogga þar sem ég hef alveg rosalega fátt að segja ykkur..! :whut: eeen hvað sem því líður skal ég nú segja ykkur hvað ég gerði í dag.

Þetta byrjaði á því að ég vaknaði kl 5:20 í morgun af því að mig dreymdi ógeðslega pirrandi draum og var geðveikt pirruð og þá fór ég að hugsa um soldið sem kom uppá í vinnunni hjá mér í gær...held að ég hafi ekki verið búin að segja ykkur frá því.

Allavega þá var ég að vinna í Nesbakka og átti bara að vinna til 7 en nei...haldiði þá að það hafi ekki komið einhver kona að skila fullt af drasli sem hún keypti fyrir eitthvað sona...félag eða eitthvað þannig. Og hvenær haldiði að hún hafi komið..?! 8|  ég skal sko segja ykkur það, hún kom kl 18:58 eða eitthvað álíka..! Ég var sko bara rétt bráðum að fara að læsa hurðinni...eeen neeeeij..þá kom konan bara með fullt af gosi og svölum til að skila..! Þarna vorum við Arna bara 2 að vinna...og þar sem við erum nú ekki búnar að vinna þarna neitt rosalega lengi vissum við ekkert almennilega hvað við áttum að gera strax...en við fundum síðan útúr því kl 19:00 (btw þegar við áttum að vera búnar að vinna.!!!) allavega...ég gerði þetta sko...og áður en ég skannaði allt inn átti ég að ýta á einn lítinn asnalegan takka sem stendur á SKILA. Og hvað haldiði að hafi gerst...ég GLEYMDI því..! ooog Arna benti mér á þessi litlu mistök þegar ég var sona hálfnuð með þetta allt...þannig að ég þurfti að skila þessum helming og skanna þetta semsagt 2 sinnum í viðbót inn í kassann! ARG..þetta var frekar pirrandi :evil: Eeeen loksins kláruðum við þetta og þurftum þá að fara að gera upp og ganga frá helvítis gosinu og svölunum. Að því loknu gátum við loksins labbað útur búðinni kl 19:17 eða eitthvað..! OH...! ég verð sko pirruð á því að skrifa um þetta..!

Allavega svo að ég haldi áfram með daginn í dag... þarna þegar ég vaknaði kl 5:20.. fór ég að hugsa um þetta atvik og vá hvað ég varð pirruð! sko var líka pirruð útaf draumnum og ég hélt að ég ætlaði að springa...og svo til að toppa þetta allt...þá kom svona smá birta meðfram gardínunni í herberginu mínu og hvernig sem ég sneri mér fór hún alltaf beint í augun á mér..! úff...en ég náði loksins að losa mig við pirringinn og sofnaði aftur rétt fyrir 6 og svaf til sona hálf 12 :haha:  fór upp og fekk mér að borða, horfði á nágranna og fór svo smá bæjarrölt með Erlu :) Við fórum fórum til mömmu af því að ég þurfti að faxa eitthvað til Sjóvá til að fá æfingarleyfi á bílinn minn (og pabba) en þá komst ég að því að ég þurfti að ná í einhverja pappíra heim fyrst...og haldiði bara ekki að mamma hafi bara lána okkur Erlu bílinn! ;) hehe algjör snilld... við bara eitthvað rúntandi á Yaris-num! ;) Jæja...svo fór Erla bara heim.. en ég hélt áfram að rölta eitthvað. Svo fekk ég nú leið á því á endanum, fór á pizzu 67, keypti mér 12" pizzu, labbaði með hana heim og hér sit ég, feit og einmanna að borða pizzu með sósu, skinku, ananas, bönunum og osti! ;) mæli með þessu næst þegar þið pantið pizzu, mjög gott..! 8)

Þetta er svona sirka það sem ég gerði í dag. En á meðan ég skirfaði þetta frábærlega skemmtilega blogg (*hóst*) fékk ég alveg rosalega góða hugmynd. Þar sem ég veit ekkert hvað ég get haft inná þessari blessuðu síðu minni ætla ég að biðja ykkur um hugmyndir..! ;)

 Þannig að endilega skrifið í skoðanir hvað ykkur finnst að ég geti sett inn á síðuna fyrir ykkur að skoða..! :haha:

segjum þetta bara gott...Bæj! :klikk:

 

- Elínborg -  


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 20:19:08 / eg_hata_tetta

fyrsta almennilega bloggið ;)

 

Jáh..! :) hvað getur maður nú sagt...æj segi ykkur nú bara hvað hefur á daga mína drifið síðan ég stofnaði þessa síðu! :) hehe...:)

allavega, á föstudaginn var alveg frábært próflokaball haldið af NIVA ;) algjör snilld...;) Vona bara að allir hafi skemmt sér vel..:) svo á laugardaginn þurfti ég að fara að vinna kl. 14 hundruð, eftir vinnu þurfti ég að skura og svo kom mamma að ná í mig. Hún var semsagt að koma frá Boston og færði mér alveg fullt af fötum, gaf adda 2 boli og svo fengum við 2 poka af m&m og karton af tyggjói..! :) alla vega.. ég fekk 3 hliraboli, 2 stuttermablo, 2 langermaboli ooog ermar..! :haha: hehe smá dekurbarn... :$ svo dag, semsagt sunnudag, fór ég afur að vinna kl 14 hundruð til 19 hundruð, fór heim, fekk mér að eta og hér sit ég núna að blogga...:) 

En jæja... Eurotrip kallar...;) bææjó! :evil:

 

- Elínborg - 


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 17:22:11 / eg_hata_tetta

Hæj :)

 

Jæja..enn ein síðan..;) ætla nú að reyna að halda þessari eitthvað gangandi..;) en samt aðal tilgangurinn með að stofna þessa síðu var að ég bara verð að setja upp eina skoðanakönnun þannig að ég hvet alla til að kjósa..;)

 

Eeeen...allavega í dag fór ég að kíkja á lokaprófin mín og einkunnirnar og þetta kom bara vel út :) náði öllu :D jæja...nenni ekki að skrifa meira...nóg að gera..;) 

 

Your blogger: Elínborg ;) 


» 3 hafa sagt sína skoðun


eg_hata_þetta
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 734529 dögum
RSS tengill